.....?

Tuesday, September 13, 2005

Ég mæli með því að þið þvoið grænmetið ,,,,

Ohhhhjjj... ég er ennþá með hroll og mig klæjar í magann!!!
Svo er mál við vexti að ég var að laga mér þennan prýðis kvöldverð: ofnsteiktar svínakótelettur með beikoni, gulrótum, sveppum og lauk í svona tómapure með hrísgrjónum sem er nottla ekki frásögufærandi nema fyrir það að þegar ég ætlaði að útbúa salat með því þá tók ég eftir því að kálhausinn minn var svo grálúsugur og iðandi í pöddum að ég er hissa á því að hann hafi ekki getað labbað sjálfur á borðinu!!!! OJJJ og ég var sko búinn með helminginn og hafði ekki þvegið kálið:(
Svo hér eftir geri ég ALLTAF eins og mamma segir og þvæ grænmetið og laga alltaf mat með gleraugun á mér og öll ljós kveikt!
Maturinn bragaðist annars afbragðsvel svona salatlaus;)

En áframhaldið af Desperate housewifes byrjar hérna í kvöld, mikil spenna.. tvöfaldur þáttur. Ég missi reyndar af fyrsta þar sem ég er að fara í ræktina ætla að fá útrás á Hönnu í Boxi.. hehe hun er heppin í dag að ég er ekkert pirruð og er bara í góðu skapi svo ég verð bara slök;) verð að hlaupa, ætla að reyna að brenna öllum pöddunum sem ég japlaði á í vikunni...

4 Comments:

  • At 11:55 AM, Anonymous Anonymous said…

    Jakkerí jakk.. vá hvað ég hefði ælt!!!! ég er búin að ákveða að næst þegar þú verður á króknum þá tökum við djamm stelpurnar.. kominn tími til að líta við á þar.. hef ekkert kíkt við að ráði síðan í des 2003!! næstum tvö ár.. vó

    Hafðu það gott.. Hilsen, Oddný

     
  • At 1:14 PM, Blogger Margret Silja said…

    Sammála því Oddný.. hvernig gat þetta eiginlega gerst.. ekki síðan í des 2003???
    Jæja þá verður bara tekið á því 3falt næst!
    Hlakka til;) margret

     
  • At 1:18 PM, Blogger Elva B said…

    Oddny er ekki bara malid ad skreppa ut tu flygur til køben vid tokum lestina yfir og djommum hja margreti Annars se eg nu ekki fram a ad hafa mikinn tima til ad koma i heimsokn Magga min næsta helgi er langur fredagsbar og ega tiltektarvakt svo er islendinga innflutningsparty a laugardaginn. 2 helgina i okt held eg ad amma og afi koma svo er Barhopdferd helgina a eftir svo kemur mamma og svo Anna og einhverntiman verdur madur svo ad taka lærihelgar eg ætti kannski bara ad koma til tin i lærihelgi . Kannski bara aå hætta ad hanga a netinu og læra a virkum dogum djamma svo med godri samvisku um helgar :) gott annars ad tu ert buin ad hefna tu attir tad skilid.

     
  • At 7:10 AM, Anonymous Anonymous said…

    Margrét mín. mundu að pöddur eru bara prótein, hollustan út í gegn ;)
    en stelpur skemmtileg tilfinning sem hefur heltekið mig undanfarin kvöld. það er svona: shhhhhiiiiiit ég á eftir að læra!!!!!....... nei nei, bíðum nú við, ég á ekkert að læra ég á bara að vera að slaka á og hafa það næs....ahhh.
    langaði bara að deila þessu með heiminum

     

Post a Comment

<< Home