.....?

Wednesday, September 21, 2005

Klukkedí-klukk!

Usss... hún Oddný klukkaði mig í einhverjum blog-eltingarleik á netinu og ég komst ekki í stykk... svo hér eru staðreyndirnar fimm....

1. Þar sem það var nú hún Oddný sem klukkaði mig ætli það sé ekki best að ég láti þá staðreynd í ljós að ég er Siglfirðingur.. abbabbab.. þó ekki í húð og hár .. heldur líka Keflvíkingur! Ég get ekki ákveðið mig þrátt fyrir miklar röksemdafærslur á heimilinu um það hvort er betra að vera svo ég er vön að kalla mig bara Sauðkræking, flúði svo af landi brott í kjölfarið fyrir 3 árum hehe... Þessi blanda gefur þó þá sameiginlegu niðurstöðu að ég er alger sveitastúlka!

2. Ég borða ALLT!! Allt nema nammi, það hef ég ekki borðað í 6 og ½ ár og ekki svona hreint súkkulaði eins og konfekt og páskaegg í 7og ½.... er samt byrjuð að borða kex aftur. Ég er samt alger sælkeri og læt kökur sjaldan fram hjá mér fara;) Ég hef líklega eytt helmingnum af ævinni í eldhúsinu að elda, borða eða baka, jafnvel læra, djamma eða bara hanga.. samt mest borða!

3. Ég er þrjóskari en allt sem þrjóskt er.. nei ekki frek.. BARA ákveðin ;) (klassískur þessi) En þið sem þekkið mig þá er ég vön að fá mínu framgengt! Þessum eiginleika fylgja þó tvímælalaust kostir og gallar ...

4. Ég er glötuð í boltaíþróttum! Fólk hlær meira að mér en með mér þegar ég legg þá kúnst fyrir mig, geri það þó af og til þar sem ég hef alveg óskaplega gaman af því að hlæja yfir höfuð;) ... en allar íþróttir sem ekki innihalda bolta elska ég og spriklaði í sundi og frjálsum í 12 ár. Það er bara því að þakka að ég er ekki 300 kíló!

5. Mér lá mikið á að fá bílprófið. Byrjaði að læra á jóladag þegar ég var 16 ára. Lét senda ökuskýrteinið á löggustöðina í Keflavík svo ég gæti fengið það STRAX þegar ég kom frá Kanarí jólin sem ég varð 17. Bætti síðan við mótorhjólaprófi í skírteinið seinna..... Þrátt fyrir allt þetta fer ég allra minna ferða á risastórri gamalli þrumu.. bláu ryðguðu reiðhjóli!

Jæja ég held ég hafi sagt alveg dagsatt.. og engu gleymt.... en ef svo er þá er það bara skrifa komment;)

En ég ætla að klukka.. taddarada.. Önnu Tzz-tzzz, Elvu Perlu, Sigríði Ítalíu mær, Önnu Betu og Kusu (Oddný var búin að ná Söndru;).. hlakka til að lesa um ykkur skvísur;)

4 Comments:

  • At 12:50 PM, Blogger Margret Silja said…

    flott að þessir sjálfkrafavinir mínir sem ég er áskrifandi af standa sig;) hvaða bullkomment eru þetta eiginlega?

     
  • At 3:44 AM, Anonymous Anonymous said…

    hæ hæ gella, þetta er mjög flott og skemmtileg síða. En allavega þá klukkaðir þú mig. Ég man reyndar ekki eftir því, en það hlýtur að haf gerst þegat við vorum í lögg og bófa fyrir rúmlega 10 árum. En ég "er hann" núna og bíddu bara því að ég á eftir að klukka þig aftur svo að þú neyðist til að skrifa 5 nýjar staðreyndir haha.. Þá kemst ég kannsi að einhverju sem ég vissi "ekki". jæja.. ég ætla að fara að finna einhverjar 5 góðar og ekki svo neiðarlegar staðreyndir og skrifa þær svo inn á síðuna mína. kveðja Anna Beta

     
  • At 5:24 PM, Anonymous Anonymous said…

    það eru naumast aðdáendurnir;) þú mátt sko alveg kenna mér að elda og baka því ekki kann ég það hehe!;)

     
  • At 5:25 PM, Anonymous Anonymous said…

    þetta var ég hérna fyrir neðan.. gleymdi að kvitta fyrir mig! ODDNÝ!!!!

     

Post a Comment

<< Home