.....?

Thursday, August 24, 2006

Ég er NAKIN!!

Raggi var skellihlæjandi þegar ég vaknaði í morgun og sagði mér að ég hafi tjáð honum það í nótt að ég væri nakin! Ég sagði honum víst oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að ég væri nakin:/ hmm eftir því sem ég best veit þá var ég í værum blundi þegar ég færði honum þessi stórtíðindi.

Ég tók aðra svona sofandi syrpu um daginn þegar ég rauk framúr rúminu um miðja nótt í þvílíkum bömmer yfir því að vera of sein í vinnuna, hellti mér yfir Ragga fyrir það að hafa verið að fikta í vekjaraklukkunni á meðan ég gerði mig líklega til að byrja að klæða mig.. þegar ég rankaði við mér og fattaði að klukkan var bara hálf 3.. :/

Haha frekar fynndið.. á hverju ætli ég taki uppá næst?? Er ekki best að ég nýti mér þessa fréttnæmu nekt mína og taki nokkur dansspor næstu nótt haha (þetta er venjulega milli 2-3 ef þið viljið njósna..)

En hvað er þetta með að skipta um blogg eins og maður skiptir um nærbuxur?? Maður virðist ekki vera maður með mönnum nema endurnýja lookið reglulega.. mig er hreinlega farið að langa að skipta.

3 Comments:

  • At 4:32 PM, Anonymous Anonymous said…

    Hehehehe mér finnst að þú ættir bara að halda þessu áfram, það er valla leiðilegt að vakna hlægjandi á morgnanna eins og Raggi fær greinilega að gera!
    En hvenær á eiginlega að senda manni myndirnar frá menninganótt??
    ég er enn að bíða...
    sentu bara á sandrag2@gmail.com þegar þú hefur tíma eskan!
    Sandra

     
  • At 1:36 AM, Blogger Margret Silja said…

    Um helgina.. ég lofa!! því ég er nebbla komin í FRÍÍÍÍÍ eftir daginn í dag vííiííi:)

     
  • At 2:05 AM, Anonymous Anonymous said…

    hehehe vonum bara að þú takir ekki uppá því að fara nakin í vinnuna um miðja nótt;-)

     

Post a Comment

<< Home