.....?

Sunday, May 07, 2006

Æði

Jæja best ég bloggi og dáist að góða veðrinu áður en ég verð farin að blóta því í sand og ösku af sökum sólbruna!!
Helgin var alger draumur.. sitt lítið af öllu. Byrjaði á því að eyða seinniparti Föstudagsins í bongó-sólbaði í litlu rjóðri með Sjönu og Kolbrúnu, þær voru by the way KOLbrúnar (enda búnar að vera á spáni báðar 2, ætli ég hafi ekki bara gert þeim greiða með því að liggja á milli þeirra og reflektað sólinni frá mínum næpuhvíta hörundi;) (hehe ekki lengur sko..)
Svo skellti ég mér til Köben á laugardagsmorgunin til Elvu og við strippluðumst í Kongens Have med skólabækurnar. Fórum út að borða kínverskt og í öl trivial persuit kvöld heima hjá frænku Elvu. Sól sól og ennþá meiri sól í dag.. bikiní sólbað og lestur;)

Verkefnavinna alla vikuna........

1 Comments:

  • At 8:08 AM, Anonymous Anonymous said…

    ég er einmitt hérna heima að læra, léttkædd og sæt.. ótrúlega heitt hérna inni íbúð ;)

    jæja svo bara daddaradara djamm í sumar :)

     

Post a Comment

<< Home