.....?

Sunday, May 14, 2006

Saga um Gunillu Geitung, áframhald:

Geitungahlunkurinn áðurnefndi sem var byrjaður á búi í studentamössunni verður hér eftir kölluð Gunilla heitin. Í dag er Gunilla látin og hetjan ég drap hana sjálf.. ALVEG sjálf!!!!! Kl 6 aðfaranótt Laugardags lýsti ég opinberlega yfir stríði gagnvart Gunnillu heitinni. Ég vaknaði kl rúmlega 3 eftir að hafa sofið í 2 tíma við gjörsamlega snarbrjálaðan geitung sem þyrlaðist um herbergið mitt með þvílíkum látum og steypti sér niður í dýfum í leit að búi (sem var horfið haha). Helga það fynndasta var að hún var þvílíkt að djöflast í myndinni af þér uppí hillu.. pottþétt funndist þú líklegust til þess að hafa tortýmt búinu hennar haha! Allavega þá hélt ég að ég myndi pissa í brækurnar af hræðslu og faldi mig undir sæng í þeirri von að hún rataði út um gluggann fyrr en síðar. Ég var orðin frekar þreytt á þessu kl hálf 6 þegar ég var að kafna innpökkuð undir sænginni því sólin var farin að skýna beint inn og lagði loksins í leiðangur með glas þegar Gunilla var orðin rólegri. Mér tókst loksins að veiða helvítið rétt fyrir 7 þegar ég var hálf farin að skæla af pirringi:( En ég náði semsagt að sofa tæpa 5 tíma þessa átakaríku nótt, en ég viðurkenni það alveg að ég fylgdist spennt með henni kafna í gær í hefndarskini.. þið ráðir hvort þið kallið þetta mannvonsku eða sjálfsvörn;)

Og vegna skilningsleysis frá honum Ragga mínum þá bæti ég glöð "Geitungaveiðum" við hans helming á heimilisverkalistanum okkar. Þá lýtur listinn svona út: Raggi; Vaska upp-Ryksuga-Þvo þvott-Skúra-Versla í matinn-Slá grasið-Veiða geitunga.. OK gleymdi ég nokkru??? :)

4 Comments:

  • At 3:38 AM, Anonymous Anonymous said…

    hahahahahahhahahahhhahahahahaha góð Margrét. við lestur þessarar færslu leið mér eins og stoltri móður. Sátt með þig. hahaha
    kv. sjana

     
  • At 8:40 AM, Anonymous Anonymous said…

    Puffffff, nú rak mig í rogastans, Margrét Silja...... Heiftarlegur misskilningur á skipan heimilisstarfa.

    En ég má kannski þakka fyrir að Gunilla sé öll(ég er ekki að réttlæta þessa meðferð á dýrum....), því hún lætur þig greinilega hafa allskonar ranghugmyndir ;)

    Síðasta fyrirsögn “Dýrahatarinn Margrét”: jamm, ég er nú sammála því. Ég þori varla að bjóða henni upp í hesthús, því þar sér hún ekki fallega hesta að leik í gerði, heldur fær hún vatn í munnin við að sjá ljúfengan mat á hlaupum og skiptir það ekki máli hvort um sé að ræða aldursforsetann eða litla Svala minn. Þetta vill hún bara éta :/ en ég verð víst bara að lifa við þetta, hehe :):)

    Kveðja, Raggi dýravinur.

     
  • At 12:32 PM, Blogger Margret Silja said…

    Takk Sjana Takk.. heldur allavega einhver með mér!
    Og Raggi þú hlýtur að vera búin að gleyma hvað ég er orðin ryðguð í íslensku því ég skil varla þessa forníslensku þína;).. en umm eigum við ekki að vígja nýja grillið með góðu folaldakjöti í sumar??

     
  • At 8:14 AM, Anonymous Anonymous said…

    I have been looking for sites like this for a long time. Thank you! teen anal information on divorce papers in jackson county missouri

     

Post a Comment

<< Home