.....?

Tuesday, November 28, 2006

26-25-24-23....dagar í jólin!!!

Ekki dauð enn.. bara glötuð í því að blogga.. en kæmi mér samt ekkert á óvart ef ég myndi hrökkva upp af stressi bráðlega! Setti met í skólanum um daginn.. til hálf 5 aðfaranótt Laugardags og var mætt í skólann aftur kl 9 um morguninn til að kynna verkefnið!! Met í vinnunni líka.. vann til kl 1 aðfaranótt Föstudags þegar ég var tilneydd að yfirgefa skrifstofuna þar sem þjófavörnin hafði betur í slagsmálunum okkar!... Ég er farin að rjúka upp um miðjar nætur og reka ragga í skólann því ég held alltaf að ég sé of sein haha:) En sumir eru byrjaðir í prófum á meðan ég er ennþá í verklegum tilraunum, skýrsluvinnu og verkefnaskilum urrr :(

Mikið annað en skólinn búið að gerast síðustu daga.. vorum tæpa viku hjá honum Guðmundi litla uppá spítala en það fór sem betur fer betur en leit út fyrir í fyrstu og er hann búin að vera þvílíkt duglegur í endurhæfingu! Við Raggi erum búin að vera í 10 daga í mömmu og pabba leik að passa og aga til litlu frændur mína hehe. Svo varð hann pabbi gamli 50 ára og við slóum til teiti fyrir hann:) Svo má ekki gleyma honum ragga sem varð árinu eldri um helgina... alveg 27 ára.. svo hann nálgast óðum þrítugt haha (O-Ó) en það er nú ekki að sjá á þessu unglambi;)

En ég rakst á þessar skemmtilegu reglur um daginn.. ekki verra að hafa þær á hreinu til að forðast óþarfa streytu og misskilning á prófatímabilinu haha:


Reglur í svefnherbergisgolfi:

1. Hver leikmaður skal leggja til eigin útbúnað til leiksins, venjulega eina kylfu og tvær kúlur.
2. Leikur á vellinum verður að vera samþykktur af eiganda holunnar.
3. Ólíkt golfi utandyra, er takmarkið að koma kylfunni í holuna og halda kúlunum frá.
4. Fyrir árangursríkan leik, skal kylfan hafa stíft skaft. Vallareigandum er leyfilegt að kanna stífni skaftsins áður en leikur hefst.
5. Vallareigendur hafa full réttindi til að banna kylfulengd til að forðast skemmdir á holunni.
6. Takmark leiksins er að taka eins mörg skot og nauðsyn þykir þangað til fullnægjandi leik er náð. Ef úrskeðis fer getur það valdið banni til að leika aftur.
7. Það er álitið slæmt leikform að byrja leik í holu strax eftir komu. Reyndir leikmenn taka venjulega tíma í að dást að öllum vellinum, með sérstakri áherslu á vel lagaða hóla og sandgryfjur.
8. Leikmenn eru varaðir við að minnast á aðra velli sem þeir hafa spilað á eða þá sem þeir eru að spila á við eiganda vallarins sem spilað er á. Eigendum í uppnámi hefur verið vitað til þess að valda skemmdum á búnaði leikmanns fyrir þessar sakir.
9. Leikmönnum er ráðlagt að hafa almennilegan regnbúnað meðferðis, til vara.
10. Leikmenn skulu ekki gera ráð fyrir að völlurinn sé alltaf í ástandi til að leikið sé á honum. Leikmenn gætu farið hjá sér ef að þeir komast að því að völlurinn er í tímabundinni viðgerð. Leikmönnum er ráðlagt að vera einkar gætnir undir þessum aðstæðum. Reyndari leikmenn munu finna breytilegar aðferðir þegar svona stendur á.
11. Leikmenn skulu gera ráð fyrir að leikurinn sé almennilega áætlaður sérstaklega þegar leikið er á nýjum velli í fyrsta skipti. Fyrrum leikmenn er vitað til að verða pirraðir ef að þeir uppgötva að einhver annar er að leika á það sem þeir hafa álitið einkavöll.
12. Eigandi vallarins er ábyrgur fyrir vexti runna, sem geta dregið úr sjáanleika holunnar.
13. Leikmönnum er sterklega ráðlagt að fá leyfi eigandans áður en reynt er að leika á bakhlutanum.
14. Hvatt er til hægs leiks, samt sem áður skulu leikmenn vera viðbúnir við að leika á meiri hraða eftir óskum eiganda.
15. Það er álitinn framúrskarandi árangur , ef tími gefst til, að leika á sömu holu nokkrum sinnum í einum leik.

Gott í bili.. ajdö (setti inn nokkrar myndir frá því í sumar og haust inn á myndasíðuna um daginn;)

4 Comments:

  • At 3:55 AM, Anonymous Anonymous said…

    OOojjjáá, er kominn heim úr fyrsta prófinu, en það sem er betra er að ég sit núna einn að náttúrunamminum, ekki slæmt það!!

    Aldur skvaldur, er einhver munur á því??? :)

     
  • At 4:47 AM, Blogger Margret Silja said…

    nei akkurat enginn.. ég vona bara að þú verðir ekki svona ellituðari hahaha;) svona farðu að læra og minnstu ekki orði á það hvað jólafríið þitt nálgast óðum...

     
  • At 10:40 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hehehe omg
    ég helt ég myndi kafna úr hlátri við að lesa þessar reglur =D

    Bókhlaðan á morgun skvís?

    kv. Sandra

     
  • At 3:52 PM, Blogger Margret Silja said…

    hmm þarf að vinna um morguninn.. er ég þá ekki búin að missa af sæti?? :( á sunnudaginn?? hmm er líka búin að týna símanum mínum.. reyni að ná af þér á msn við tækifæri hehe

     

Post a Comment

<< Home