.....?

Saturday, October 29, 2005

Aldrei að rífast við konu..

Jæja annar dagurinn í röð á bókasafninu frá oppnun til lokunar.. ég er kannski búin að læra frá mér allt vit og finnst þessi brandari þess vegna svona fynndinn.. eða að ég verð bara að horfast í augu við það að ég er alveg jafn mikil aulabrandara kona og áður;)

Hjón í sumarfríi fóru í bústað við Þingvallavatn. Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið. Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið, setur út akkerið og kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók. Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum.
"Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera?" spyr hann.
"Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!).
"Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn.
"Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún.
"Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta".
"Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá.
"En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn forviða.
"Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund". "Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á brott.

Boðskapur sögunnar: Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að hún geti líka hugsað !!

Múahahah.. aldeilis sniðugur;) en ég veit að litli bróðir er örugglega ennþá í svefngalsa eftir rúmlega sólarhrings vöku svo honum fynnst þetta kannski fynndið. Hann sofnaði sko í sturtu í gær!!!! (Halló.. er það hægt???) En hann vaknaði samt sjálfur.. honum var nebbla orðið svo kalt. Ef hann er ekki mesta krútt í heimi!!

Jæja best að skella sér í matarboð og henda frá sér þessum blessuðu bókum.. ég er farin að hugsa í efnaskiptaprocessum.. og það á sænsku! ástandið er slæmt!

2 Comments:

  • At 5:30 AM, Anonymous Anonymous said…

    blessuð kella og takk fyrir síðast.. hey Árni heiðar er kominn í bloggmenninguna.. endilega kvittaðu í gestó.. veit að honum myndi finnast mjöööög vænt um það, þar sem hann dýrkar þig!! :) www.blog.central.is/arni_heidar

     
  • At 10:19 AM, Blogger Margret Silja said…

    Vúhú.. ég er búin að kvitta.. flott nú missir maður ekki af neinu slúðri af Sigló;) En lélegt.. við vorum ekki einu sinni á vinalistanum!! haha

     

Post a Comment

<< Home