.....?

Friday, October 07, 2005

Lítill heimur

Það var skondið í dag þegar ég var að hjóla niðri í bæ og sá konu sem ég kannaðist geggjað við... hausinn fór í gang.. hugsa-hugsa.. svo pæng þegar ég var búin að hálf snúa mig úr hálsliðnum þá kom uppúr mér mjög upphátt.. AGNES! Haha hversu fast getur útlit á fólki setið í kollinum á mér? því þetta var hún Agnes flokkstjórinn okkar í unglingavinnunni þegar við vorum í 8. bekk!!! og það eru bara 8 ár síðan þá. Hún var svo mikill snillingur og var í þvílíku uppáhaldi hjá okkur stelpunum. Það var svo gaman hjá okkur í vinnunni þetta sumar að okkur fannst bara æði að reita lúpínu! Allavega þá hefur hún ekkert breyst.. á 8 árum og búin að eiga 2 börn! Svona ætla ég að vera.. svo nú ætla ég bara að standa í stað í svona 10 ár héðan í frá -passa að halda vel við þegar ég hnerra og brosa í algeru lágmarki til að flýja hrukkurnar!

Það er innflutningspartý hjá Jenny á morgun, svo við Hanna fórum í bæinn að kaupa innflutningsgjöf, ég keypti nokkrar jólagjafir í leiðinni (jamm í Október..) svo stóð ég mig með eindæmum vel í því að flýja lærdóminn og fór að pakka inn og skreyta.. leið eins og það væru að koma jól! ... ég er eins og lítill krakki.. ég hlakka geggjað til jólanna!!!

3 Comments:

  • At 8:59 AM, Blogger Elva B said…

    ëg ætladi ad segja eitthvad fyndid datt svo ekket i hug

     
  • At 12:22 PM, Anonymous Anonymous said…

    hæhæ litla systir. Spjallaðiru ekkert við gamla flokkstjórann þinn, og ef hún mundi nú ekki eftir þér þá hefðiru nú getað minnt hana á risa naríurnar með Brad Pitt á sem þið gáfið henni. Hún er pott þétt ekki búin að gleyma þeim og þær hanga örugglega ennþá uppi í stofunni hjá henni.
    Kveðja Helga Elísa

     
  • At 3:10 PM, Blogger Margret Silja said…

    Hey jó Elva! þú ert búin að hafa 3 vikur til að koma uppá e-ð sniðugu!! hehe.. en það er sama hvað það er elskan min, alltaf gaman að heyra í þér og að þú kvittir fyrir komu þinni;)
    Og Helga.. hahaha ég var búin að gleyma því.. þetta voru flottar naríur sko.. "Just my size!" haha

     

Post a Comment

<< Home