.....?

Tuesday, June 26, 2007

Karin och Mattias på besök


Þá er ævintýraför Svíanna á enda. Veðrið var eins og eftir pöntun... bongóblíða 7 daga í röð verður að teljast nálægt því að vera met í sögu landsins! Karin og Mattias voru svo hæstánægð að ómeðvitað reyndu þau að framlengja ferðina eins og þau gátu og mættu degi of seint í flug haha :) En það var vel hvalaskoðunarinnar og Bláa/græna Lónsins virði að splæsa í smá breytingargjald svona eftirá.

Þau spókuðu sig með velmerkt götukort af borginni ýmisst á bílnum eða hjólum á meðan ég og Raggi vorum í vinnunni og svo var engin miskunn á slaginu hálf 5 var full dagskrá. Á topp 10 listann komast:

1. Miðnæturreiðtúr í Kjósinni
2. Kayakróður í kringum Viðey í kvöldsólinni.. í leiðinni selaskoðunarferð;)
3. Kvöldganga á Esjuna á mettíma
4. Jónsmessu-brenna, útilega og skemmuball að Stóra-Hofi
5. Midsommarfest á Föstudagskvöldið með skemmtilegastu bæjarferð sem ég hef upplifað
6. Skoðunarferð á Þingvelli
7. Hefðbundni túristahringurinn á Gullfoss og Geysir
8. Fjórhjólaspól í sveitinni
9. Sundsprettur í Bláa/kúkagula Lóninu
10. Sænskur midsommar lunch með blómakransa, snapsa og tilheyrandi uppí bústað á föstudeginum
Raggi pratar jú orðið flytande svensku og er heldur betur til í brottflutning í haust;)

Það voru ekki til reiðhjálmar fyrir alla heldur urðu þeir sem sátu á mestu skaðræðisskepnunum að lynda sér við motorcross hjálm (sem var full þörf á á meðan mestu rassaköstin stóðu yfir..) Aðrir vildu líta betur út og fengu sér cowboy hats yfir hjálminn..:)

Á leið í land eftir Kayakferðina í kringum Viðey...
Þetta hefði óneitanlega verið kúl mynd ef ég hefði ekki skellt spari-grettinu mínu upp...
Í góðum gír á brekkusöng og varðeld..

Varðandi Bláa Lónið þá veit ég ekki hvaða græna lit menn voru að tala um í fréttum.. fyrir okkur var þetta mjög kúkagulur litur og engu líkara en það hefðu allir baðgestir verið með niðurgang í pollinum.. vibbilibb!

Miðbæjardjamm Reykjavíkur var eins og það gerist best fyrir útlendingana.. það fyrsta sem blasti við þeim var Gudjonsen sjálfur ásamt Guðna Bergs og fleiri félögum. Eiður tók nú reyndar gott flug niður stigann á Oliver beint fyrir framan nefið á þeim og bjóskvettur eftir því... get ekki neitað því að það hafi verið doldið fyndið:) Þar að auki dönsuðu þau við hlið landsliðskvenna í fótbolta og landsliðsmanna í handbolta... það var nottla ekki hægt að segja útlendingunum annað en að á Íslandi væru ALLIR afreksmenn og nánast allir heimsfrægir heh:)

Tvöfaldur Gin og Tonic í boði landhelgisgæslumannsins Tobba hélt í okkur lífinu langt fram eftir nóttu.. já og tók vissulega hluta mannskapsins úr umferð líka ahaha;) En Ginið áskotnaðist mér fyrir að varðveita munaðarlausan gsm síma sem ég fann á gólfinu þar til hringing barst og ég gat komið honum til síns heima! En það var semsagt eiginkona Tobba sem skipaði honum að bjóða mér í glas og mér datt virkilega EKKERT í hug nema tvöfaldur gin & tonic.. þetta var svipuð tilfinning og að vera með slæma ritstíflu!
En jæja best að fara að sofa... það tekur sko á að vera túristi á Íslandi:)

2 Comments:

  • At 7:41 AM, Blogger Unknown said…

    En flott dagskrá! Ég myndi sko vilja koma í heimsókn til þín og hafa þig sem guide! Spurning um að panta það í Sverige einhverntíman á næstunni, heimsækja bróa og co og ykkur Ragga =)
    En ég veit ekki hvað það er en það virðist vera fyndnara að sjá 'fræga' manneskju detta en hvern annan.
    Spurning um að fara í blak bráðum??
    þegar við erum búin að mála =)

    Erum að fara norður um helgina, eruði nokkuð að fara líka?

     
  • At 6:16 AM, Blogger Margret Silja said…

    Tja já guide í Svíþjóð.. kannski þegar ég er búin að fá túristahring frá Karin og Mattiasi þá get ég apað hringinn eftir þeim og þóst voða fróð heh;) En ekki spurning um að slá saman í 2 heimsóknir í haust!!

    Að sjá fræga fólkið detta er óneitanlega fynndið.. gott dæmi með umgfrú alheim hér um árið haha..ég er enn að hlægja:) En hún ósk situr enn í topp 5 sætunum þegar hún labbaði á skilti merktu bílastæði fyrir fatlaða haha;)

    Og blak.. strandblak í kvöld eftir vinnu.. ekkert mála hvað.. maður þarf nú líka smá ferskt loft:)

    En með norðurför þá erum við ekki að fara norður, er að fara í gönguferð með vinnunni frá Hvalfirði yfir á Þingvelli og grill og glens á eftir;)

     

Post a Comment

<< Home