.....?

Tuesday, June 19, 2007

Sumarfrí, reyklaus skemmtun og sænskt tjútt...

Er enn á lífi.. og endurnærð eftir sólarlandaförina! Ohh það var alveg yndislegt þarna úti.. í stuttu máli var þetta helst...

  • Bacon, egg, pönnukökur með súkkulaðismjöri, franskar og brownies í morgunmat á hverjum morgni
  • Hlaðborð í hádeginu
  • Fríir drykkir, kokteilar og snacks á sundlaugarbakkann og hótelherbergið allan daginn
  • Aftur hlaðborð á kvöldin
  • Fljótandi um á vindsæng í sundlaugunum við hótelið eða í sjónum (persónulelga var mér betur við sundlaugarnar af sökum hræðslu við ófreskjurnar hákarla aww)
  • Einn stærsti sundrennibrautagarður í Evrópu
  • Rúnta léttklæddur um eyjuna á mótorhjólum í geggjuðu veðri
  • Verslunarferð til Tyrklands (svo við kíktum yfir til Asíu sem er soldið kúl;)
  • Og fleira og fleira afslappelsi;)

Svo ég vil bara þakka mínum yndislegu foreldrum og tengdó fyrir að vera svo æðisleg að bjóða okkur út:)

Jú eitt enn.. Danir eru bara dónalegasta og frekasta þjóð sem ég þekki.. punktur!

Síðasta helgi var mjög skemmtileg, nokkrar útskriftir og svo gott skrall þar á eftir. Ég útskrifaði sjálfa mig bara í huganum heh, en “BS gráðunni”=120 einingunum hefur semsaagt verið landað.. (90 íslenskar) en að sjálfsögðu engin gráða þar sem þeir svíar eru ekkert að skipta þessu upp í neinn óþarfa heldur bara allt eða ekkert. Svo ég lofa veglegu teiti að 2 árum liðnum;)

Þið trúið mér ekki hvað það var YNDISLEGT að djamma reyklaust!! Maður þurfti ekki að skola af sér skítinn um leið og maður kom heim, gat hugsað sér að hátta sig í sama herbergi og maður svaf í og maður vaknaði ekki með lungun full af annara manna skít morguninn eftir! Og að reyklausa tilefninu skelltum við okkur á kaffihús á sunnudagskvöldið eftir landsleikinn og viti menn bara enginn skítalykt af manni á eftir og ég gat drukkið mitt heita súkkulaði án þess að mér liði eins og manneskjan við hliðiná væri að kæfa mig!! Ég neita því ekki að ég naut þess pínulítið að sjá “bííííp” reykingafólkið húka fyrir utan í skítakulda hehe;)

En að öðru leiðinlegra varðandi helgina þá hafði einhver óþolandi óþroskaður baaaaaa íslendingur smá skemmdarþörf á leiðinni heim úr bænum aðfaranótt Sunnudags og já ákvað að mölbrjóta og sparka bara hliðaspeglinum af bílnum okkar af niðrí bæ!!! Arrg hvað sumt fólk er bara mikið FÍFL!!! Svo svo svo lýsandi fyrir Reykjavík að það er ALDREI neitt bara látið í friði urrrr

En íslenska landsliðið í handbolta sá alveg um að bæta fyrir þetta á sunnudagskvöldið;) Þvílík stemmning í húsinu, ég, Raggi og Margrét G skelltum okkur! Ég missti reyndar af hluta af leiknum því forsetafrúin okkar hún Dorrit var með show hinu megin í heiðursstúkunni.. hún var að missa sig úr kátínu kellan:) hún er alveg yndisleg þessi kona! Það var annað að sjá forsætisráðherrann okkar hann Geir, en það var engu líkara en hann hefði sent styttu af sjálfum sér sem staðgengil á leikinn! Manninum stökk bara ekki bros á vör þessa 2 tíma, og hann var btw eini maðurinn í öllu húsinu sem sá sér ekki fært að taka þátt í góðri bylgju. Kannski skyggði Dorrit bara svona leiðinlega á hann með gífurlegum hressleika í næsta sæti;)

En það er mikið mikið gaman framundan því á morgun koma Karin och Mattias í heimsókn til okkar og ætla að vera fram á Sunnudagskvöld. Mikið plan framundan.. túrista flandur, fjallgöngur, útilega og tjútt:) Svo er að sjálfsögðu partý á Föstudaginn.. svo allir skemmtilegir muna að taka kvöldið frá;)

2 Comments:

  • At 8:47 AM, Anonymous Anonymous said…

    jei blogg! en gaman. er ekki enn búin að prófa að fara á reyklaust djamm í reykjavík æslend, en get ímyndað mér að það sé gott að koma heim ekki gegnsósa. ákvað að kommenta þó ég hafi lítið að segja þar sem ég kvartaði í gær undan bloggleysi..hehe:) síjú

     
  • At 5:56 AM, Blogger Unknown said…

    Já það er yndislegt að fara í bæinn núna, núna getur maður einmitt kíkt á kaffihús á virkum degi án þess að þurfa að þvo öll föt sem þú ferð í og fara í sturtu. Mér finnst það bara agarlega fyndið þegar reykingarfólk er að reyna að koma með einhverjar röksemdir fyrir að þetta sé rugl, þau tala um sig eins og lítinn hóp fólks sem er lagður í einelti í samfélaginu! En mikið hljómar ferðin til Rhodos yndislega, úff hvað ég vildi að ég væri þar núna en ekki að mygla í vinnen

     

Post a Comment

<< Home