.....?

Tuesday, December 18, 2007

afmæli og jól II ;)

Ákvað bara að halda sama titli og síðast, þar sem það er nú komið enn nær jólunum og ég á bráðum afmæli sjálf;) ekkert stórafmæli, bara 18 í fimmta sinn!! :)
Skólinn LOKSINS búinn, setti met í All-Nighters á önninni. Eins og það er gott að vera ekki í neinum prófum, þá er það jafn mikið pain að skila svona mikið af verkefnum á önninni! Raggi var að klára síðasta prófið í dag, rúllaði því að sjálfsögðu upp og er á leið frá Köben núna. En nóg af skólanum!

Margrét Guðmunds kom á miðvikudaginn, og stoppaði fram á sunnudag. Uss tvær kaupóðar, rauðvínsþyrstar, mjög málglaðar kaffíhúsarottur... þetta var góð heimsókn:)

Hér er Margrét að taka mig í Rassgatið í Trivial, og farið að rjúka úr mér af keppnisskapi (ætti kannski að fara önnu ráðum, að spila ekki af læknisráði...) hehe :)

Hér tókum við svo forskot á jólamatinn (sumra) svínakjöt, brúnaðar kartöflur og sósa (var svona að reyna að ítreka það fyrir sumum að þetta væri nú bara hefðbundinn sunnudagsmatur;) Annars erum við Ragnar komin að ágætis sátt í máli, að borða bara hvorki rjúpur né svínahamborgarahrygg á aðfangadag hjá okkur, heldur hreindýrakjöt (Raggi heldur að það sé voða góður díll, en hann veit ekki að hreindýrakjöt er mjög líkt rjúpu hehe;)

Við Margrét skelltum svo saman þessu prýðispiparkökuhúsi. Það sést nú ekki nógu vel á myndinni að það eru sko gluggar í húsinu... gæðaklassi:)

Jæja, við komum á klakann í kvöld, verðum í Reykjavík fram á Jóladag, þá ætla ég að eyða afmælisdeginum mínum í að keyra norður örugglega í blindbil og enda á því að missa af skírninni hans Antons Þorra, afmæliskaffinu mínu, rjúpunum sem bíða mín og þurfa að eyða deginum í Staðaskála! haha... you know, búast við hinu versta þá verður slæmt kannski bara ágætt;) Svo förum við suður aftur 29-30 og fljúgum út sunnudaginn 30.
Dags að pakka. Nóg að farangri eins og venjulega, því þó svo að ég hafi verið búin með jólagjafainnkaupin mín þá tókst mér að næla mér í fleiri verkefni... fór að kaupa jólagjafir frá múttu fyrir mann og annann:)

5 Comments:

  • At 7:11 AM, Anonymous Anonymous said…

    Kærar þakkir fyrir frábærar mótttökur, voða gaman að koma í heimsókn til ykkar;) Og bara svo það sé á hreinu þá kom ég ekki mikið nálægt þessu piparkökuhúsi, best að láta verkfræðinginn sjá um það! Þó eigna ég mér heiðurinn af gluggunum, snilldarhugmynd alveg hreint þó ég segi sjálf frá! Gleðileg jól...

     
  • At 3:16 PM, Anonymous Anonymous said…

    hæhæ og takk fyrir síðast! Ætlaði bara að óska þér til hamingju með daginn!!:) Sjáumst svo kannski á balli á morgun (þú átt náttla inni hjá mér ehehe)
    Kv. Anna Ragna

     
  • At 12:47 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hæ hæ dúllí dúll gaman að sjá ykkur um daginn þótt það hefði auðvitað verið allt of stutt, kiss kiss

     
  • At 12:48 AM, Anonymous Anonymous said…

    öööjá þetta síðasta er frá mér.... önnu M

     
  • At 6:06 AM, Blogger Margret Silja said…

    Margret: takk fyrir frabaera heimsokn somuleidis, eg reikna med ter til Lundar nk haust:) Og vardandi kokuhusid, ta attir tu allan heidurinn af tessum snilldar gluggum, verkfraedingum naegir tak yfir hofudid, tad eru felagsfraedingar sem setja haerri krofur hehe!

    Anna: Takk takk, sjaums i Lundi eftir nokkra daga:)

    Anna II: Eg vissi ad tetta vaerir tu:) Tad var frabaert ad hittast, snoggt en gaman, tu verdur ad fara ad gera ter menningarferd til Skandinaviu, vid verdum ad endurtaka lestarfjorid med elvu:)

     

Post a Comment

<< Home